Ábyrgðasjóður launa
Þegar lýst er kröfu um vangoldin laun, bætur vegna launamissis í uppsagnarfresti eða orlofslaun vegna greiðsluerfiðleika skal lýsa kröfu um heildarlaun án frádráttar opinberra gjalda. Ábyrgðasjóður launa gerir skil á staðgreiðslu til skattyfirvalda.
Kröfulýsing launamanns
Eyðublað fyrir kröfulýsingu launamanns er hægt að nálgast hér (pdf skjal, excel skjal). Á eyðublaðinu er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram auk fylgigagna:
-
Nafn, kennitala, heimilisfang og bankareikningsnúmer kröfuhafa
-
Nafn, kennitala og heimilisfang vinnuveitanda
-
Dagsetning gjaldþrotaúrskurðar og frestdags
-
Hvaða starfi kröfuhafi gegndi, upphaf og lok starfstíma, launakjör og upplýsingar um á hvaða samningum þau voru byggð
-
Upplýsingar um hvernig krafa er gerð og fyrir hvaða tímabil hver krafa nær
-
Sundurliðun kröfu í höfuðstól, kostnað og vexti
-
Yfirlýsing þess efnis að undanþágur frá ábyrgð Ábyrgðasjóðs launa eigi ekki við viðkomandi kröfuhafa.
Kröfulýsing vegna lífeyrissjóðsiðgjalda
Þegar lýst er kröfu vegna lífeyrissjóðsiðgjalda er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram auk fylgigagna:
-
Nafn og kennitala hvers launamanns sem krafan er fyrir
-
Nafn, kennitala og heimilisfang vinnuveitanda
-
Dagsetning gjaldþrotaúrskurðar og frestdags
-
Sundurliðun kröfu fyrir hvern launamann skipt niður í iðgjaldatímabil
-
Sundurliðun kröfu í höfuðstól, áfallins kostnaðar og vexti
-
Yfirlýsing þess efnis að undanþágur frá ábyrgð Ábyrgðasjóðs launa eigi ekki við viðkomandi kröfuhafa
Kröfulýsing fyrir orlof vegna greiðsluerfiðleika
Launamenn sjálfir eða stéttarfélög í umboði þeirra geta sótt um greiðslu orlofslauna á þar til gerðu eyðublaði (dot skjal, word skjal). Á eyðublaðinu er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram auk fylgigagna:
-
Nafn, kennitala, heimilisfang og bankareikningsnúmer kröfuhafa
-
Nafn, kennitala og heimilisfang vinnuveitanda
-
Upphæð kröfunnar og til hvaða tímabils hún nær
-
Hvaða starfi launamaður gegnir eða gegndi hjá vinnuveitanda
-
Yfirlýsing þess efnis að undanþágur frá ábyrgð Ábyrgðasjóðs launa eigi ekki við viðkomandi kröfuhafa.
Leita
Samskipti
Ábyrgðasjóður launa
Vinnumálastofnun
Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu
150 Reykjavík
Sími 515 4800
Fax 511 2520
Netfang
Símatími kl. 9:30 - 11:00.
Mynd







