Ábyrgðasjóður launa
Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslu á kröfum um vangoldin laun, bætur vegna slita á ráðningarsamningi, orlof, bætur vegna vinnuslysa og lífeyrissjóðsiðgjöld í bú vinnuveitanda sem hefur staðfestu og rekur starfsemi hér á landi. Ábyrgð sjóðsins er háð því skilyrði að kröfurnar hafi verið viðurkenndar sem forgangskröfur skv. lögum um gjaldþrotaskipti.
Ábyrgðasjóður launa er starfræktur skv. lögum nr. 88/2003 og með framkvæmd þeirra laga fer félagsmálaráðherra.
Ábyrgðasjóðurinn lýtur þriggja manna stjórn sem skipuð er af félagsmálaráðherra til fjögurra ára í senn samkvæmt tilnefningu Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og sá þriðji án tilnefningar.
Vinnumálastofnun annast daglega umsýslu Ábyrgðasjóðs launa og reikningshald sjóðsins í umboði sjóðsstjórnar. Ársreikningar sjóðsins eru endurskoðaðir af Ríkisendurskoðun og birtir í B-deild Stjórnartíðinda.
Stjórnarmenn:
| Guðný Hrund Karlsdóttir, formaður | Skipuð af félags- og tryggingamálaráðherra | |
| Álfheiður Sívertsen | alfheidur@sa.is | Tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins |
| Magnús M. Norðdahl | magnus@asi.is | Tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands |
Starfsmenn:
| Björgvin Steingrímsson | bjorgvin.steingrimsson@vmst.is | Deildarstjóri |
| Hafdís Hrönn Benediktsdóttir | hafdis.benediktsdottir@vmst.is | Fulltrúi |
| Hallveig G. Ragnarsdóttir | hallveig.ragnarsdottir@vmst.is | Fulltrúi |
| Hugrún Björk Hafliðadóttir | hugrun.haflidadottir@vmst.is | |
| Maren A. Jakobsdóttir | Fulltrúi | |
| Unnur Sverrisdóttir | unnur.sverrisdottir@vmst.is | Sviðstjóri stjórnsýslusviðs |
Leita
Samskipti
Ábyrgðasjóður launa
Vinnumálastofnun
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Sími 515 4800
Fax 511 2520
Netfang
Símatími kl. 9:30 - 14:00.
Mynd







